Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Niðurstöður

Eðli hugbúnaðarfyrirtækja og markaðanna sem þau sækja á er svo fjölbreytt að auðvitað er ómögulegt að gefa nein eindregin svör sem niðurstöður skýrslu af þessu tagi. Það er engin forskrift sem hægt væri að fara eftir til að sneiða framhjá öllum erfiðleikum, það væri hrokafullt að halda slíku fram. Það eina sem hægt er að gera er að veita upplýsingar um hvað aðrir hafa gert og vona að það gefi einhverjar hugmyndir við ákvarðanatöku þeirra sem skýrsluna lesa. Sérstaklega er erfitt að draga haldbæran lærdóm af árum sem hafa öðru fremur einkennst af öfgum. Kísilæðinu er þannig best lýst sem stangastökki án dýnu, á leiðinni upp var það tilkomumikið og gaman fyrir þá sem tóku þátt. En á niðurleiðinni greip um sig örvænting meðal þátttakenda og margir lentu illa.

Ákveðnir hlutir komu upp aftur og aftur í viðtölunum. Sumir þessara hluta eru þess eðlis að flestir telja sig vita þá, en einhvernvegin er það þannig að menn virðast þá stöðugt vera að fara gegn betri vitund og sneiða framhjá þessum hlutum. Þess vegna virðist eina leiðin vera að halda baráttunni áfram og telja þá ítrekað upp í von um að stimpla þá enn fastar inn. Í þessum kafla er reynt að ítreka það helsta.

Það voru tveir hlutir sem gengu í gegnum öll viðtölin eins og rauður þráður.

Nr. 1. Þetta tekur lengri tíma

Nr. 2. Þetta kostar meiri peninga

Þessir tveir hlutir voru þau tvö ráð sem viðmælendur ítrekuðu um fjölmarga hluti í ferlinu. Og við skulum staldra við það, því hér var verið að ræða við marga reyndustu menn innan íslensksrar hugbúnaðargerðar. Þriðja atriðið sem kom oftast upp var þessi kjarni málsins að þetta væri bara endalaus vinna, menn verði að gera sér grein fyrir því að það er ekkert hægt að stytta sér leið. Það er nauðsynlegt að leggja mikla vinnu í allan undirbúning, áætlanagerð og öguð vinnubrögð.

Varðandi fylgni á milli spurninga þá var það helst einn hlutur sem kom fram sem getur talist af nokkru mikilvægi og það er á hvaða stigi vöruþróunar fyrirtæki ákváðu að leggja í útrás. Öll nema eitt af þeim fyrirtækjum sem sögðust vera að skila hagnaði einbeittu sér að heimamarkaðinum á meðan á upphaflegri vöruþróun stóð. Viðmælendur sumra þessara fyrirtækja voru þó þeirrar skoðunar að heimamarkaðurinn ætti að mæta afgangi.

Það að gera fyrstu útgáfu hugbúnaðarins hér heima felur í sér mikla hagkvæmni miðað við að vera að setja upp fyrstu útgáfur erlendis, auk þess er mikilvægt að vera kominn með einhverja innkomu þegar lagt er í þann mikla kostnað sem felst í leiðinni á erlendan markað.

Óvíst er þó hversu djúpt skal lesið í þessa fylgni, margir aðrir hlutir koma inn í myndina, m.a. voru þau fyrirtæki sem eru að skila hagnaði almennt eldri en þau sem það eru ekki að gera og kann það að skekkja myndina nokkuð. Engu að síður er þetta fylgni sem virðist vera til staðar og því ber að taka hana til alvarlegrar umhugsunar.

1 Þetta tekur lengri tíma gummih 907
2 Þetta kostar meiri peninga gummih 958
3 Þetta er þrotlaus vinna gummih 975
4 Hver er lausnin gummih 413

Skylt efni