|
Hvernig á að búa til vöru og koma henni á erlendan markað? Eitt af þeim helstu atriðum sem komu aftur og aftur berlega í ljós í viðtölunum var að það eru engin svör. Það eru engar töfra lausnir og við sem Íslendingar höfum ekkert forskot á aðra sem vinna við hugbúnaðargerð. En þó að engin hrein svör fáist kannski við þessari spurningu þá er hægt að velta upp mörgum góðum hugmyndum. Reynsla manna af útrás er gríðarlega fjölbreytt og oft eru margar leiðir færar. Þá getur verið erfitt að gera upp á milli hvaða leið er best og gjarnan er það þannig að ein ákveðin leið er ekkert endilega betri en einhver önnur. Það var aldrei ætlunin að þessi skýrsla gæfi eindregin svör heldur einungis að miðla því hvað aðrir aðilar hafa talið bestu leiðina og reynslu þeirra af þeim ákvörðunum sínum. Við vinnslu skýrslunnar myndaðist þó ákveðin innsýn og heildarsýn yfir ferlið sem erfitt er að koma til skila í niðurstöðum hverrar spurningar fyrir sig. Í þessum kafla er ætlunin að koma þessari heildarsýn til skila. Í kaflanum er farið í gegnum útrás hugbúnaðarfyrirtækis frá stofnun þess og allt þar til fullkláruð vara hefur náð fótfestu á erlendum markaði. Þessi kafli eru mat höfundar á því sem hann taldi skynsamlegast við útfærslu útrásar eftir að hafa rætt við alla þá sem komu að gerð skýrslunnar, viðmælendur á fyrirtækjalistanum auk annarra. Það ber því að líta á kaflann sem hlutlæga ráðgjöf en ekki endilega það sem algengast er í íslenskum hugbúnaðariðnaði og ekki sem algild svör. |
|
Þeim sem vegnar vel, eru að selja mikið Þeim sem vegnar illa, eru að selja lítið
|