Viðmælendur skiptust hér í þrjá hópa eftir því hvort þeim fannst að heimamarkaður ætti að: ganga fyrir, teljast sem hluti heimsmarkaðar eða mæta afgangi. Flestir viðmælenda, nálægt því helmingur, var þeirrar skoðunar að heimamarkaðurinn ætti að mæta afgangi. Sumir þeirra voru þó þeirrar skoðunar að hann væri mikilvægur í upphafi, sem prófunar markaður þá helst en að þegar varan væri tilbúin þá ætti hann að mæta afgangi, aðallega vegna smæðarinnar. Það væri hreinlega ekki hægt að ætla sér að tína upp sölur hjá þeim litlu fyrirtækjum sem myndi íslenska markaðinn, að það svaraði ekki kostnaði.
Um þriðjungur var þeirrar skoðunar að heimamarkaðurinn ætti að ganga fyrir, að hann sé grunnurinn sem útrásin sé byggð á. Meðal þeirra kosta sem nefndir voru við að láta heimamarkaðinn ganga fyrir voru ánægðir viðskiptavinir á heimamarkaði og innkoman.
Það er verðmætt að hafa mjög ánægða viðskiptavini hér heima þegar verið er að nota Ísland sem prófunarmarkað. Ef menn fari svo að sinna íslensku viðskiptavinunum minna þegar farið sé í útrás þá geti það orðið til þess að þeir verði ekki eins opnir fyrir því að láta setja upp hjá sér nýjar útgáfur af vörunni. Eins geti verið bagalegt að fá tilvonandi viðskiptavini í heimsókn og geta ekki farið og sýnt þeim dæmi um ánægða viðskiptavini á heimamarkaði. Ef tilvonandi erlendir viðskiptavinir sjá að viðskiptavinir í 10km fjarlægð frá hugbúnaðarfyrirtækinu eru ekki að fá fyrsta flokks þjónustu þá er hætt við að þeir verði smeykir um gæði þjónustunnar sem þeir komi til með að njóta.
Að lokum var um einn sjötti þeirrar skoðunar að líta ætti á heimamarkað sem hvern annan markað að hann ætti ekki að lúta neinum öðrum reglum en erlendir markaðir að hvorki ætti að leggja meiri eða minni áherslu á hann.







Comments