Það bar vott um hversu mjög þau fyrirtæki sem farið var í, treysta á erlendan markað að tveir þriðju viðmælenda sögðu að hlutdeild heimamarkaðar væri 10% eða minni. Einungis eitt fyrirtæki var með hærri hlutdeild heimamarkaðar en 30% og það var með yfir 90% enda var það rétt að leggja af stað með erlenda markaðssetningu. Vel flestir viðmælenda sögðu einnig að hlutdeild heimamarkaðar færi minnkandi.
Þetta má þó ekki skilja sem svo að heimamarkaður sé ekki mikilvægur því heimamarkaðurinn er mun mikilvægari þegar fyrirtæki eru að koma með fyrstu útgáfu vöru á markað.







Comments