Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Lögðu fjárfestar fram þekkingu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Það var ánægjulegt að sjá að tveir þriðju viðmælenda, sem á annað borð sögðust hafa fengið utan að komandi fjárfesta, sögðust hafa fengið fjárfesta sem lögðu fram þekkingu. Í flestum tilvikum var um að ræða fjárfesta sem lögðu fram fjármála og rekstrarlega þekkingu en einnig var nokkuð um að menn hefðu fengið fjárfesta sem lögðu fram tæknilega þekkingu. Varðandi fjárfesta sem leggja fram tæknilega þekkingu þá ræddu sumir um að á þeim hafi verið mikill skortur og hafi í raun hreinlega ekki verið til fyrr en nýlega, þar sem flest tæknifyrirtæki hafi haft í nógu að snúast að fjármagna sinn eigin rekstur og átt erfitt með að fjárfesta í öðrum fyrirtækjum. Það virðist hafa verið svo að í umræðunni hafi verið rætt meira um fjárfesta sem lögðu fram tæknilega þekkingu heldur en fótur var fyrir.

Það er svo tvennt ólíkt að fá fjárfesta sem búa yfir ákveðinni þekkingu og það að fá fjárfesta sem í raun og veru leggja hana fram. Það getur þannig verið varasamt að taka þekkingu með í reikninginn sem jafngildi peninga þegar samið er við fjárfesta. Til dæmis getur komið í ljós þegar á líður að erfitt reynist að samnýta þekkingu eða að tengiliðanet fjárfestis er kannski ekki á nákvæmlega því sviði sem fyrirtækið hefði þarfnast

Comments

Name *
Email (For verification & Replies)
URL
Code   
ChronoComments by Joomla Professional Solutions
Submit Comment
 

Skylt efni