Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Kostnaður fjármögnunarferlisins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Við þessari spurningu reyndist erfitt að fá svör, fæstir voru með nákvæmar tölur enda mikið af tíma stjórnenda sem fellur inn í dæmið. Það var þó ljóst af svörunum að það er mjög kostnaðarsamt að fara í fjármögnun, sérstaklega eins og umhverfið er í dag. Þær tölur sem voru nefndar voru á bilinu 5-10% af fjármögnunar upphæðinni. Inni í þeim tölum var tekið tillit til tíma stjórnenda, lögfræðikostnaðar, greiningarvinnu á fyrirtækinu og þóknunar til útboðs aðila ef um var að ræða.

Ef ætlunin er að fá til aðstoðar aðila sem taka að sér að fjármagna fyrirtæki gegn þóknun þá skiptir mestu máli að þóknun þeirra sé árangurstengd. Jafnvel að hún sé þrepaskipt, sé t.d. verið að selja ákveðinn hlut í fyrirtækinu þá gætu allir aðilar haft mestan áhuga á að hafa 2% þóknun upp að 100 milljónum en 8% þóknun fyrir þann pening sem aðilinn aflar umfram 100 milljónir.

Comments

Name *
Email (For verification & Replies)
URL
Code   
ChronoComments by Joomla Professional Solutions
Submit Comment