Svörin við þessari spurningu tóku snörpum breytingum eftir því hvort fjármögnunin fyrir útrásina fór fram fyrir eða eftir árið 2000. Árið 1999 þegar kísilæðið stóð sem hæst þurftu fyrirtæki varla annað en að opna dyrnar til að fjármagnið flæddi að úr öllum áttum og fjármögnun tók jafnvel ekki nema nokkra mánuði. Þau fyrirtæki sem fóru í að fjármagna útrás seinni part árs 2000 eða síðar voru hinsvegar yfirleitt ennþá að reyna að fá inn tveimurtil þremur árum síðar. Í þeim hópi eru líka fyrirtæki sem fóru í útrás fyrir árið 2000 en lentu í því að útrás þeirra var dýrari en gert hafði verið ráð fyrir og þurftu að fara í viðbótar fjármögnun.
Í eðlilegu árferði (ólíkt 1999) er ekki ráðlegt að ætla minna en eitt ár í að fá inn aukið hlutafé ef finna á nýja fjárfesta.







Comments