Oftar en ekki var ekki neitt ákveðið svar sem viðmælendur gátu gefið við þessari spurningu, oft var hún fjármögnuð á allan mögulegan hátt, úr stofnfé, rekstri og hlutafjárútboði líka. Þetta kemur beint inn á gerð kostnaðarmats fyrir útrás, því eins erfitt og það reyndist að gera kostnaðarmat þá kostaði útrásin í meirihluta tilvika meira en menn höfðu gert sér vonir um. Því þurfti að ná í meira fjármagn og oft þurfti þá aðgang að nýjum vösum.
Í sumum tilvikum fóru fyrirtækin svo að segja beint í útrás og fjármögnuðu hana mestmegnis úr stofnfé, nú eða rekstri ef hann gekk vel.
Í þremur tilvikum var útrásin alfarið fjármögnuð með auknu fé frá stærsta eða eina eigandanum en í tveim þriðju tilvika var útrásin mestmegnis fjármögnuð með hlutafjár útboði.







Comments