Það var nokkuð algengt að vörurnar sem um var rætt hófu líf sitt sem sérlausn fyrir einhvern íslenskan viðskiptavin. Þá var ferlið oft þannig að eftir að sérlausnin var farin að virka og viðskiptavinurinn búinn að greiða fyrir kerfið þá var sá peningur nýttur í að breyta kerfinu í vöru, sem oftar en ekki fól í sér algera endurhönnun eða að minnsta kosti meiri endurhönnun en framleiðandinn hafði gert sér vonir um. Það er svo ekki hægt að ætlast til að viðskiptavinur sem biður um sérlausn sé reiðubúinn að greiða fyrir þróun á almennri lausn og gerast að einhverri rannsóknarottu hugbúnaðarfyrirtækisins meðan verið er að hreinsa burt villur í hugbúnaðinum. Fyrirtæki getur þannig lent í því að þessi viðskiptavinur sem þeir byggja nánast allt sitt á hótar að hætta samstarfinu með tilheyrandi afleiðingum fyrir fyrirtækið. Leiðin sem slík er þó ekki svo slæm, en það að ætla að fá allt fyrir ekkert heppnast seint. Ef báðir aðilar fara út í meðvitað samstarf um þróun almennrar vöru þá getur það reynst báðum afar vel.
Sumir biðu þar til varan þeirra var komin með góða hlutdeild á heimamarkaði áður en haldið var á erlendan markað á meðan þeir sem voru með sérhæfðari vörur stefndu oft út frá upphafi með litla sem enga áherslu á íslenska markaðinn.
Það var einn af áhugaverðari hlutunum sem komu fram við úrvinnslu spurninganna að hér kom fram fylgni á milli þess hvaða leið menn völdu og hvort fyrirtækið væri að skila hagnaði. Öll nema eitt þeirra fyrirtækja sem sögðust vera að skila hagnaði höfðu byrjað á því að vinna íslenska útgáfu fyrst og setja hana á markað hér heima. Þó svo að sú útgáfa hafi í sumum tilvikum þurft að ganga í gegnum töluverðar breytingar áður en farið var með hana á erlendan markað.
Margir ræddu um að fyrirtæki sem á annað borð hafi markað á Íslandi eigi ekkert erindi út fyrr en þau séu búin að ná góðri hlutdeild hér heima. Ef þú ert stjórnandi í stóru erlendu fyrirtæki þá lítur það ekki mjög vel út þegar fámennt fyrirtæki frá fámennu landi sem þú hefur aldrei heyrt neitt um er að reyna að selja þér vöru sem þetta fámenna fyrirtæki hefur ekki einu sinni náð að selja neinum á heimamarkaði sínum.







Comments