Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Öguð vinnubrögð og ávinningur þeirra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Allir viðmælendur sögðust beita öguðum vinnubrögðum. Vel flestir ræddu líka um að það hefði ekki verið þannig í upphafi, að það hafi einfaldlega komið í ljós að öguð vinnubrögð á öllum sviðum séu alger nauðsyn.

Sumir vilja hafa allt í ákveðnum ferlum á meðan aðrir vilja ekki eyða tíma í að útbúa ferli nema fyrir mikilvægustu hlutina. Almennt séð þarf kannski færri ferli í minni fyrirtækjum en samt eru þó nokkur ferli og vinnureglur sem enginn ætti að sniðganga. Kóðastjórn (source control), útgáfustýring, villumeðhöndlun og prófanir í föstum ferlum var í flestum tilvikum talið ómissandi ásamt tímaskráningu og öðrum hlutum sem auðvelda hverskyns áætlanagerð.

Vinnureglur

Nokkuð mismunandi var hverskonar vinnureglur menn nefndu að þeir störfuðu eftir. En meðal þeirrar aðferðafræði sem var farið eftir á mismunandi sviðum voru:

  • Capability Maturity Model
  • Extreme Programming
  • Rational Unified Process
  • ISO 9000

Ákveðin ferli

Góð ferli innan fyrirtækisins eru gríðarlega mikilvæg og ítrekuðu viðmælendur það oft að þau verði að vera til staðar og undir góðu eftirliti. Án góðra skjalaðra ferla innan fyrirtækisins er allt í lausu lofti, allir eru að vinna eftir sínum eigin ákveðnu reglum því menn hafa engin skýr fyrirmæli um hvernig skal meðhöndla hlutina.

  • Menn vilja þó ganga mismunandi langt í gerð ferlanna en þó eru nokkrir ferlar sem enginn ætti að sleppa.
  • Tímaskráning og verkbókhald
  • Skjalastjórn og útgáfustjórn
  • Villugreining og lagfæringar
  • Þróunar – Prófunarferlar (Tilgreina á hvaða hátt hlutar kerfisins skulu þróaðir og hvernig skal tryggja að þeir séu villufríir)

Það skal nefnt hér að fyrir lítil og ung fyrirtæki er auðvelt að falla í þá gryfju að vera ekki með nákvæma verkefnastjórn. Þar sem 2-3 starfsmenn sjá um alla vinnuna eiga menn það á hættu að telja að verkefnastjórnun og tímaskráning sé ekki til neins. Sum af þessum fyrirtækjum leysa viðkomandi verkefni vel úr hendi, önnur ekki. En það skiptir ekki máli á hvorn veginn verkefnið fór það er alltaf kostur að hafa haldið nákvæmlega utan um þann tíma sem fór í það, hvaða hlutir það voru sem voru að dragast á langinn, hvar villur voru helst að koma upp og hvað annað það var sem var ábótavant. Allt þetta er reynsla sem getur reynst fyrirtækinu ákaflega mikilvæg þegar það tekur að sér umfangsmeiri verkefni í framtíðinni.

Sumir velja þá leið að byggja upp nokkurs konar stjórnarskrá fyrir verkefni, slík stjórnarskrá er þá oft almennari efnis en nákvæmir ferlar eru en á móti nær hún yfir víðara svið eins og m.a. samskipti og vinnutíma starfsmanna.

Vottað eftir gæðastaðli

Nokkrir aðilar sögðust hafa gæðastaðla til hliðsjónar en afar fáir voru vottaðir. Þó sögðust sumir fara það vel eftir stöðlunum að þeir gætu sótt um vottun með litlum fyrirvara. Litlar kröfur virðast vera hafðar uppi um að menn séu vottaðir, jafnvel í geirum eins og opinbera- og heilbrigðisgeiranum.

Comments

Name *
Email (For verification & Replies)
URL
Code   
ChronoComments by Joomla Professional Solutions
Submit Comment