Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Hvað ákveður að vara sé þróuð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Hvað ræður því að vörur eru þróaðar? Samkvæmt viðtölunum má nánast kalla það tilviljun. Sumir kölluðu það jafnvel hálfgerða slysni. Mjög margir voru með sérlausn sem þeir höfðu gert fyrir íslenskan aðila og vildu gera úr henni vöru sem selja mætti í massavís. Aðrir fóru af stað með vöru vegna þess að þeim fannst hana vanta og gerðu ráð fyrir að aðra vantaði hana líka. Nokkrir aðilar hafa farið af stað með vöru sem ekki var komin þörf fyrir ennþá en menn áætluðu að þörfin skapaðist í nálægri framtíð. Það voru þá helst aðilar sem höfðu verið um nokkurn tíma í iðnaðinum sem fóru af stað með slíkar vörur. Sú aðferð að rannsaka markaðinn, finna vandamál sem krefst lausnar og útbúa vöru sem leysir það, fyrirfinnst varla.

Comments

Name *
Email (For verification & Replies)
URL
Code   
ChronoComments by Joomla Professional Solutions
Submit Comment
 

Skylt efni