Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Þetta er þrotlaus vinna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Það er gríðarlega erfitt að byggja upp vöru erlendis og ná góðri markaðshlutdeild. Fyrirtækið þarf að vera mjög vel skipulagt frá toppi til táar. Það verður að leggja mikla vinnu í að koma á öguðum ferlum innan þess, annars verða öll verkefni þess formlaus og stjórnlaus.

Það verður að veita töluverðu fé í áætlanagerð. Áætlanirnar verða að vera unnar af vandvirkni og það þarf að vera gott eftirlit með því hvort raunverulegur framgangur sé í takt við áætlanirnar. Svo er gott að gera varaáætlanir og viðlagaáætlanir vegna helstu áhættuþátta í áætlanagerð. Allar áætlanir verður að endurskoða reglulega, athuga hvort framgangurinn er í takt við áætlunina, ef ekki þá reyna að finna ástæðu þess, og gera nýja áætlun ef þess þarf.

En þrátt fyrir alla áætlanagerð og allt það góða sem kemur úr henni þá er auðvitað aldrei hægt að gera ráð við öllu. Það er þó hægt að undirbúa sig þannig að maður taki fljótt eftir ef því ef eitthvað óvænt er að gerast og með réttum undirbúningi er maður betur í stakk búinn að takast á við óvæntar hindranir.

Allt er erfiðara en það lítur út fyrir í fyrstu, sölur geta krafist mikillar eftirfylgni þó þær virðist í höfn, hugbúnaðargerðin lendir alltaf á hindrunum á leiðinni og alltaf skella á algerlega óvænt áföll. Málið er líka að eins og maður eigi ekki nóg með vandræðin sem koma upp hjá manni sjálfum þá lendir maður óbeint í öllum þeim vandræðum sem fjárfestar, samstarfsaðilar, endursöluaðilar og tilvonandi viðskiptavinir eru að lenda í. Því þegar þeir lenda í erfiðleikum þá bitnar það óbeint á fyrirtækinu líka.

Í allri þessari þrotlausu vinnu þá skiptir miklu máli að vera með rétt fólk á réttum stöðum, fólk með reynslu sem hægt er að treysta fyrir viðkomandi hluta rekstursins. Það er mikilvægt að vera undirbúinn í þessa vinnu, tilbúinn í langhlaupið því annars missir fólk móðinn. Það þýðir ekkert að mæta einu sinni á fagsýning, eyða í hana fullt af peningum og mæta svo aldrei aftur vegna þess að það náðist ekki að selja neitt á henni. Með því að mæta ár eftir ár, en byrja kannski smátt, þá eykst árangurinn af slíkri vinnu og hvert ár sem bætist við nýtur góðs af þeirri vinnu sem þegar hefur verið lögð fram og þannig margfaldast hún í verðmæti ef menn halda sig við efnið.

Fókus. Einn af mikilvægustu hlutunum þegar kemur að stjórnun fyrirtækis er góður fókus á hver lykil markmið fyrirtækisins eru. Stundum vill það gerast í erfiðum verkefnum að eftir því sem þau dragast á langinn þá fer bæði starfsfólkið og stundum fyrirtækið í heild að missa þennan fókus. Sem dæmi geta smærri verkefni sem koma með peninga inn í fyrirtækið tekið starfsmenn út úr langtímaverkefnum. Slíkt getur verið gott og blessað ef það er innan hóflegra marka en hættan er að það vindi upp á sig. Hliðarverkefni og þróun á hlutum án skýrrar tekjuáætlunar geta líka látið á sér kræla og þá getur það gerst að í stað þess að áætluð verklok aðal vörunnar nálgist þá geta þau verið að fjarlægjast. Þegar það er farið að gerast og orðið ljóst hversu gríðarlega vinnu þarf til að klára verkefnið getur þurft mikið átak til þess að verkefnið sé yfir höfuð klárað. Það þarf því alltaf að vera ljóst hversu mikil vinna er fyrir höndum og að það þarf að vinna þessa vinnu, því annars er hættan að menn missi móðinn á hálfri leið.

Þetta er bara þrotlaus vinna og það er ekkert hægt að slaka á og láta hana víkja fyrir öðrum hlutum, ef það þinnist í þróunarhópnum þá þarf að fylla upp í skörðin, það þarf að hvetja fólkið áfram, berja trumburnar og aldrei gefast upp - því annars skapast sú hætta að menn sjái aldrei árangur erfiðisins.

Comments

Name *
Email (For verification & Replies)
URL
Code   
ChronoComments by Joomla Professional Solutions
Submit Comment