Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Er hugmyndin nógu góð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Hugmyndaauðgi er okkar mikilvægasta auðlind. Hugmyndin að vörunni markar allt framhald hennar. Ef hugmyndin er ekki nógu góð þá er alveg sama hversu mikið við vöndum alla framkvæmd þróunar og útrásar, hún er dæmd til að mistakast. Þess vegna skiptir öllu máli að verja tíma og peningum í að rannsaka þörfina fyrir vöru sem byggir á hugmyndinni, framboð á sambærilegri vöru, áætlaðan þróunartíma og fleira. Þetta getur oft verið erfitt því í upphafi eru peningarnir oftast af skornum skammti og oft finnst mönnum að þeir verði að flýta sér að koma vörunni af stað áður en einhverjum öðrum dettur það sama í hug.

Þegar meta á hvort hugmynd er góð eða ekki er mikilvægt að temja sér agaða hugsun, ekki hugsa um hversu miklum hagnaði varan gæti hugsanlega skilað og tína sér á bleiku skýi heldur frekar að einbeita sér að útreikningum um hversu litlum hagnaði hún mun í versta falli skila (að því gefnu að hún verði kláruð). Passa verður upp á að allir kostnaðarliðir séu inni í myndinni, eins og hversu mikið kosti að selja vöruna, opinber gjöld, rekstrargjöld og kostnaði sem felst í því að fá fjármagn inn í fyrirtækið. Mátuleg blanda af bjartsýni, efasemd og útreikningum virðist vera farsælasta leiðin.

Þessi rannsóknarvinna í upphafi hefur verið tiltölulega sjaldgæf hjá sprotafyrirtækjum og einn af hlutunum sem kom mörgum þeirra í koll. Það er ákaflega erfitt að ætla að eyða dýrmætum tíma og peningum í rannsóknir á því hvort hugmyndin sé nógu góð og þess vegna taka mörg fyrirtæki einfaldlega áhættuna. Stjórnendur halda áfram eftir eigin tilfinningu og hugmyndum um væntanlegan markað. Síðan þegar á líður geta komið ýmsir hlutir í ljós sem koma óþægilega á óvart.

Menn verða því að leggja tíma og peninga í þrotlausa undirbúningsvinnu, rannsóknir og útreikninga á því hvort hugmyndin er vænleg til að verða að hagkvæmri söluvöru. Menn verða allan þann tíma að vera reiðubúnir að taka yfirvegaða ákvörðun um hvort haldið skuli í næsta kafla leiðarinnar eða hvort það sé réttast að leita að annarri hugmynd til að gera að veruleika

Comments

Name *
Email (For verification & Replies)
URL
Code   
ChronoComments by Joomla Professional Solutions
Submit Comment
 


Molar

Ef samstarfsaðilum gengur vel, þá geta þeir reynst vel. Ef þeim gengur illa, þá munu þeir reynast illa. [1]